Villa
  • Villa varð í hleðslu gagna miðlara.
Fréttir
Lögreglufréttir Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 05. Maí 2009 19:50

  Lögreglunni bárust í síðustu viku níu tilkynningar um þjófnað.  Evinrude utanborðsmótor og 25 lítra bensíntanki var stolið úr bátaskýli í Miðfelli við Þingvallavatn.  Brotist var inn í sumarbústað við Lækjarbakka í Grímsnesi og þaðan stolið 50 tommu flatskjá.  DVD spilara var stolið úr sumarbústað í Vaðneslandi. 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 05. Maí 2009 19:57
 
Pokaball á Þingborg Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 05. Maí 2009 10:50
  Hjónaklúbbur Selfoss er 45 ára á árinu og endurvekur nú gömlu góðu Pokaböllin. Hjónaklúbbur Selfoss er einn elsti starfandi hjónaklúbbur á landinu hann var stofnaður á miðgóu 1964 og er því 45 ára um þessar mundir. Í fyrstu stjórninni voru
 
Bruni í sumarbústað í Grímsnesi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Sunnudagur, 26. Apríl 2009 19:39
 Karlmaður fæddur 1930 hefur játað að vera valdur að bruna í sumarbústað við Borgarleyni í Grímsnesi í gær.   Hann var handtekinn skammt frá brunastað á meðan slökkvistarf stóð yfir og gisti fangageymslur  í nótt en
 
Á ofsahraða á Hellisheiði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Fimmtudagur, 16. Apríl 2009 07:05

 Um klukkan tvö í nótt höfðu lögreglumenn afskipti af ökumanni bifreiðar sem mældist á 146 km hraða á Suðurlandsvegi á móts við Hellisheiðarvirkjun.  Þegar lögreglumenn fóru á eftir bifreiðinni var hraði hennar aukinn og talið að hann hafi farið um og yfir 160 km/klst. 

 
Ökumenn látnir blása Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Fimmtudagur, 16. Apríl 2009 06:57
 Lögreglan á Selfossi hefur nú í byrjun apríl fylgst sérstaklega með ástandi ökumanna.   Í því sambandi hafa verið settir upp póstar víðsvegar í umdæminu og allir ökumenn sem þar fara um verið látnir blása í áfengismæli auk þess sem kannað hefur verið með ástand þeirra m.t.t. þess hvort viðkomandi sé undir áhrifum fíkniefna. 
 
FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta



Síða 1 af 100
  • Námskeið: Jarðræktarforritið Jörð.is, Höfn

  • Námskeið: Jarðræktarforritið Jörð.is, Hellu

  • Ferðaþjónusta í Eyjum lömuð

    Lokun Landeyjahafnar lamar ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Þetta segir yfirmaður ferðamála hjá Vestmannaeyjabæ sem kallar eftir því að ríkið styrki flug milli lands og Eyja á nýjan leik.

    Samkvæmt bráðabirgðamælingum Siglingastofnunar frá því í gær er dýpi í mynni Landeyjahafnar þrír metrar á háfjöru. Það þýðir að á háflóði er dýpið sex metrar, nógu mikið til að sigla Herjólfi inn í höfnina í kyrru veðri, en skipið ristir rúma fjóra metra. Í þeirri ölduhæð sem nú er í Landeyjahöfn er það þó ekki hægt.Vöruflutningar til Vestmannaeyja eru að komast í samt lag. Fjórir gámar voru fluttir í einni ferð Herjólfs í gær. Flutningafyrirtækin hafa einnig nýtt sín skip. Eimskip flutti þannig þrjá gáma til Eyja í gær, þar af einn fyrir samkeppnisaðilann Samskip. Skip frá Samskipum flytur einn gám til Eyja í nótt. Það er ekki einsdæmi að flutningafyrirtækin nýti eigin skip til slíkra flutninga, þó hefur álagið verið meira nú en áður. Þá eru fiskflutningar frá Eyjum að komast í eðlilegt horf.En það eru ekki allir sáttir við að Herjólfur muni sigla áfram til Þorlákshafnar næstu daga. Kristín Jóhannsdóttir, menningar- og markaðsfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, segir lokun Landeyjahafnar vera gríðarlegan skell eftir góða tíma í ferðamennsku í Eyjum undanfarnar vikur. Að hennar mati er Þorlákshöfn ekki aðlaðandi kostur fyrir ferðamenn. Að auki finnst henni flug til Eyja vera alltof dýrt eftir að ríkið hætti að styrkja það. Hún vill að flug milli lands og Eyja verði ríkisstyrkt á nýjan leik.

    Málaflokkar:  Innlendar fréttir Suðurland

  • Skoskir skipstjórar veiddu ólöglega

    Sex skipstjórar frá Hjaltlandi viðurkenndu fyrir rétti í Skotlandi á dögunum að hafa á árunum 2002 til 2005 veitt og landað ólöglega tugþúsundum tonna af makríl og síld. Verðmæti aflans er sagt nema jafnvirði hátt í þriggja milljarða króna. Eitt stærsta fiskvinnslufyrirtæki Skotlands, Shetland Catch, er einnig viðriðið málið, en upp komst um það við húsleit hjá fyrirtækinu og öðru fiskvinnslufyrirtæki fyrir fimm árum. Skipstjórarnir sex eiga yfir höfði sér háar sektir, en dómur verður kveðinn upp í málinu í nóvember. Málaflokkar:  Erlendar fréttir Evrópa Dóms- og lögreglumál Sjávarútvegsmál

  • Almannavarnir vara ferðafólk við

    Búist er við talsverðri úrkomu á svæðinu kringum Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul næstu sex klukkustundirnar, allt að fimm millimetrum á klukkustund. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra beinir þeim tilmælum til fólks sem er þar á ferli að hafa varann á vegna hugsanlegra vatnavaxta í ám og skriðufalla úr fjöllum. Von er á tilkynningu þessa efnis á heimasíðu Almannavarna innan stundar. Málaflokkar:  Innlendar fréttir Suðurland

  • Skipum með kvóta 42% færri

    Skipum með kvóta hefur fækkað um ríflega 40% á fimm árum. Í Fiskifréttum í dag kemur fram að 1. september árið 2005 hafi 1111 skip og bátar fengið úthlutað kvóta samanborið við 644 í ár. Á þessum fimm árum hafi skutttogurum fækkað úr 66 í 59, skipum með aflamark úr 197 í 123 og krókaaflamarksbátum fækkað úr626 í 367. Þá hafi smábátum með aflamark fækkað úr 222 í 98 á fimm árum.

    Fiskifréttir telja nokkrar skýringar vera á þessari þróun. Við afnám sóknardagakerfisins hafi dagabátarnir flust yfir í krókaaflamarkið. Margir þeirra hafi verið með litlar veiðiheimildir og eigendurnir séð sér hag í því að selja kvótann og hætta útgerð.  Þá hafi mikil skerðing þorskaflaheimilda síðustu ár gert útgerðum af öllum stærðum erfitt fyrir og flýtt fyrir sameiningu aflaheimilda. Jafnframt hafi hátt verð á varanlegum kvóta einnig stuðlað að þessari þróun.

    Málaflokkar:  Innlendar fréttir Sjávarútvegsmál

  • Neita að borga hærra auðlindagjald

    Sjávarútvegsmenn segja ekki koma til greina að þeir greiði hærra verð fyrir afnot af auðlindinni, þrátt fyrir að samningaleið um úthlutun kvótaheimilda verði farin.

    Meirihluti sáttanefndar um fiskveiðistjórnunarkerfið leggur til að áfram verði stuðst við aflamarkskerfið og svokölluð samningsleið verði farin við úthlutun veiðiheimilda. Í henni felst að kvótaheimildir eru innkallaðar og svo gengið til samninga við núverandi rétthafa veiðiheimildanna um afnotarétt til tíu til tuttugu ára. Útvegsmenn segja ekki koma til greina að þeir greiði hærra verð fyrir afnot af auðlindinni, en núgildandi veiðigjald geri ráð fyrir en það skilar þjóðarbúinu tæpum þremur milljörðum króna á fiskveiðiárinu.Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir það markmið útgerðarmanna að greiða sem mest til ríkisins fyrir afnot af auðlindinni. Það sé gert í formi rekstrar á sjálfbærum og arðbærum sjávarútvegi, að fá sem mest fyrri vöruna og að gera þetta með sem minnstum tilkostnaði. Þannig fái ríkið mest út úr þessu. Nú séu þeir með veiðigjald þar sem þeir greiða 9,5% af aflaverðmætinu og þeir sjái ekki ástæðu til að það gjald verði hækkað.   Sjávarútvegsráðherra vildi ekki veita viðtal vegna málsins í dag. Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður sjávarútvegsmanna sakar útvegsmenn um skort á samningsvilja og ekki verði unað við óbreytt auðlindagjald. Hún segir útgerðina taka úr sjó aflaverðmæti upp á annað hundrað milljarða króna sé tekið mið af síðasta ári, og því segi það sig sjálft að núverandi auðlindagjald sé ekki að skila neinum arði í þjóðarbúið.

    Málaflokkar:  Innlendar fréttir Sjávarútvegsmál Stjórnmál